Mynd: Magnús A. Sveinsson
Sumarafleysingar óskast í Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar. Starfstöðvar eru á Siglufirði og í Ólafsfirði.
Sumarafleysingar í Íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar óskast. Um er að ræða rúm 80% starfshlutföll og er unnið bæði á Siglufirði og í Ólafsfirði. Allir starfsmenn verða að vera reiðubúnir að vinna á báðum starfstöðum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Eftirlit og gæsla í sundlaug.
- Almenn afgreiðsla og uppgjör í lok vaktar.
- Þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
- Almenn þrif og annað sem til fellur.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri, hafa bílpróf og bíl til umráða.
- Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt. reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
- Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum.
- Hreint sakavottorð.
- Góð kunnátta í íslensku er skilyrði, enska og þriðja tungumál er kostur.
- Góð tölvukunnátta er kostur.
Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá með umsagnaraðilum og kynningarbréf.
Vinnutími: Um er að ræða morgunvaktir kvöldvaktir og helgarvaktir.
Umsækjendur þurfa að gefa leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá komi þeir til greina í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með: 26. apríl 2024 og verður öllum umsóknum svarað.
Sótt er um störfin rafrænt í gegnum Þjónustugátt á www.fjallabyggd.is
Nánari upplýsingar veitir Skarphéðinn Þórsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar, netfang: skarphedinn@fjallabyggd.is og farsími 866 9136