Lagt
er upp frá Burstabrekku þegar gengið er til Dalvíkur um Dranga. Bærinn
Burstabrekka er um einn og hálfan km. sunnan Ólafsfjarðarkaupstaðar. Leið
þessi er auðrötuð vegna þess að raflína var lögð um Dranga frá Dalvík
og er næstum hægt að fylgja línunni alla leið.
Þegar
gegnið er upp frá Burstabrekku er fylgt vegarslóða sem myndaðist þegar
raflínan var lögð. Leiðin er létt, gengið er yfir gróið land og bratti lítill.
Burstabrekkudalur er sem aðrir dalir hér um slóðir umlukinn háum fjöllum.
Á hægri hönd er Hólkotshyrna, 895 m., ákaflega svipmikið fjall sem gnæfir
yfir, séð frá Ólafsfjarðarkaupstað sem píramíti. Á vinstri hönd er
mikill fjallgarður sem gengur frá Kerahnjúk að norðan inn að Dröngum að
sunnan, óslitin fjallsegg sem nær hæst 1062 m. hæð.
Burstabrekkudalur
er nokkuð gróinn upp í miðjan dal en þá tekur við gróðurlítið svæði
enda liggur snjór oft yfir dalnum langt fram á sumar. Í miðjum dal er lítið
stöðuvatn og er afrennsli þess Burstabrekkuá, allmikil á miðað við hve
stutt hún er. Á vorin ber hún með sér mikið af malarbornu efni niður
undir Ólafsfjarðarvatn, þar er það tekið og notað til ofaníburðar í
vegi.
Dalurinn
er sem áður er sagt umlukinn háum fjöllum og með þverhníptum klettabeltum
og er sú hlið Hólkotshyrnu sem inn í dalinn snýr nær ókleif. Er upp í
dalinn er komið blasir við skarðið sem nefnt er Drangaskarð. Gangan fram
dalinn er auðveld, farið er enn eftir vegarslóða um melöldur. Brátt tekur
við síðasti spölurinn upp í skarðið og er gengið á snjó. Brekkan er brött
en auðveld uppgöngu og brátt er staðið í skarðinu. Útsýni er fallegt
til Ólafsfjarðar og sést hluti fjarðarins í vaffinu sem dalurinn myndar.
Úr
skarðinu sér niður í Karlsárdal og er nokkuð bratt niður úr skarðinu og
ættu menn að fara þar með gát. Þá sér út á Eyjafjörð. Karlsárdalur
er nokkuð langur, svo ætla má að ferðin í heild niður á þjóðveg taki
um þrjár til fjórar stundir. Þessa leið er mjög gaman að fara á skíðum
og tekur hún þá mun styttri tíma ef færi er gott. Þar sem snjóalög eru
mikil í dalnum eru snjóflóð tíð og ber að varast að fara mikið um
dalinn ef hætta er á snjóflóðum. Einnig er mjög varasamt að fara upp í
Drangaskarð um hávetur, en þá er oft svo lágt undir háspennulínur að hætta
stafar af. Á Burstabrekkudal eru lindir þær er sjá Ólafsfjarðarkaupstað
fyrir köldu vatni.
Sumarskíðasvæði
er líka ágætt á Burstabrekkudal og er talað um að koma upp aðstöðu
fyrir skíðafólk enda var dalurinn á árum áður mikið notaður til skíðaferða
þegar lítill snjór var í byggð.
Leiðin um Dranga var mjög fjölfarin áður
fyrr; ekki er þó hægt að fara um skarðið á hestum sökum þess hve bratt
er Dalvíkurmegin. Leiðin var mikið farin þegar sækja þurfti lækni eða
lyf og var talin auðveld bæði að sumri og vetri. Nú er leiðin nokkuð
farin af ferðafólki, bæði frá Dalvík og Ólafsfirði.